VegVist - Vistvænar lausnir við frágang á vegsvæðum - í vinnslu
Endurheimt staðargróðurs við vegi og frágang á námum og öðrum svæðum sem raskað er við vegagerð stuðlar að því að fella mannvirkin betur að umhverfi sínu og draga úr umhverfisáhrifum þeirra. VegVist er verkefni unnið í samstarfi Landbúnaðarháskólans og Vegagerðarinnar. Meðal markmiða þess eru að taka saman yfirlit yfir stöðu þekkingar varðandi endurheimt náttúrulegs gróðurfars á svæðum sem raskað er í tengslum við vegagerð og útbúa aðgengilegt fræðsluefni um endurheimt staðargróðurs fyrir aðila er vinna að undirbúningi, framkvæmd og eftirliti með vegagerð.
Rit LbhÍ nr. 59: VegVist - vistvænar lausnir við frágang á vegsvæðum (Guðrún Ólskarsdóttir og Ása L. Aradóttir 2015) gefur yfirlit yfir helstu aðferðir sem hægt er að nota við endurheimt staðargróðurs og stöðu þekkingar varðandi notkun þeirra. Ritið er hugsað sem fræðilegur grunnur að þróun leiðbeininga, viðmiða og kennsluefnis á þessu sviði. |
Aðferðir við endurheimt staðargróðurs - yfirlit
Flutningur á gróðurtorfum
|